Willtir Westfirðir komnir út á DVD
Tuesday, 18 December 2007 08:39

Heimildarmyndin um Vestfirði, Willtir Westfirðir, eftir Kára G. Schram
er komin út á DVD. Þættirnir voru sýndir í Sjónvarpinu síðastliðið
sumar. Í þáttunum er farið
vítt og breitt um Vestfirði og íbúar teknir tali um margvísleg málefni.
Fjallað er um mannlíf, menningu og matargerð og ferðast er um land, sjó
og loftin blá frá Látrabjargi að Hornströndum auk Reykhólasveitar og
Strandasýslu. Báðir þættirnir eru á þessum eina diski og þar er að
finna bæði íslenska og enska útgáfu af þeim. Galdrasafnið á Hólmavik og Kotbýli kuklarans eru meðal þeirra staða sem heimsóttir eru í myndinni. DVD diskinn er hægt að
nálgast í sölubúð Galdrasýningar á Ströndum hér á vefnum með því að
smella
hér. Verðið á DVD diskinum er aðeins kr. 1.500.-