Ása Ketisldóttir kveður, syngur og segir sögur
Þriðjudagur, 17. Ágúst 2010 11:19

Í næsta mánuði gefur Strandagaldur á Hólmavík út geisladiskinn
Vappaðu með mér Vala með rímnakonunni Ásu Ketisldóttir frá Laugalandi
við Djúp. Efnið sem Ása fer með á þessum diski lærði hún nær allt á
bernskuheimili sínu í Aðaldal. Vísurnar sem Ása flytur á diskinum bera
merki um fjölbreytilegt yrkisefni. Á honum er fjallað um náttúruna,
ástina, heimþrá og söknuð en einnig um hesta, ferðalög, drykkjuskap og
veðrið. Nákvæmur útgáfudagur hefur ekki verið ákveðinn ennþá en hægt er
að skoða sérstaka heimasíðu útgáfunnar og skoða veglegan bækling sem
fylgir henni með því að
smella hér.
Vappaðu með mér Vala verður meðal annars hægt að nálgast í sölubúð Strandagaldurs á vefnum.