9. janúar 2005
Í fréttatilkynningu frá Landskerfi bókasafna
kemur fram að bókin
Strandanornir eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttir
var sú barnabók sem hvað oftast var lánuð út á almenningsbókasöfnum landsins á
árinu 2004. Bókin sem gerist hér á Ströndum er í öðru sæti á lista
yfir barnabækur, en það er aðeins ritröðin
Gæsahúð sem oftar var lánuð
en það er ritröð með 7 bókum. Strandagaldur er nú að hefja af krafti kynningu á
samkeppni um galdrasögur og ljóð eftir börn á aldrinum 8-12
ára, enda virðist áhugi á þess háttar bókmenntum aldrei hafa verið meiri.
Lesa meira...