Jólakort 2007 er komið út
Wednesday, 05 December 2007 21:55

Strandagaldur hefur gefið út jólakort sem skartar glæsilegri ljósmynd af Kotbýli
kuklarans í vetrarbúningi. Á bakhlið þess er frásögn um hina fornu jólasveina á
Ströndum. Það er ekki öllum kunnugt um að jólasveinar á Ströndum báru ekki sömu nöfn
og þeir sveinar sem kunnastir eru í jólasveinafræðum þessi misserin og eru oftast nefndir til
sögunnar. Þeir voru þó þrettán eins og víðast annars staðar á landinu, en höfðu
það umfram hálfbræður sína að vera meira upp á kvenhöndina. Þeir voru semsagt
kvæntir páskadísunum, sem sagt er að hafi komið til híbýla manna um páskaleytið.
Þessi eru nöfn jólasveinanna á Ströndum:
Tífall, Tútur,
Baggi, Lútur,
Rauður, Redda,
Steingrímur,
Sledda,
Lækjaræsir, Bjálminn sjálfur,
Bjálmans barnið,
Litlipungur og
Örvadrumbur.