Velkomin!

sýningin & veitingastaðurinn eru opin:

AÐGANGSEYRIR

Einn fullorðinn: kr. 1300

Stúdentar: kr. 1100

Hópar (+10 manns): kr. 1100 á mann

Eldri borgarar og öryrkjar: kr. 1000

Frítt fyrir 14 ára og yngri

Staðsetning

Galdrasýningin er við höfnina í gamla hluta Hólmavíkur. Þegar beygt er frá þjóðvegi þarf að keyra rúmlega kílómeter inn í bæinn og þar stendur svört bygging sem hýsir Galdrasýninguna. 

Heimilisfangið er Höfðagata 8-10, Hólmavík. 

Aðgengi

Það eru mörg bílastæði við húsið og eitt stæði beint við innganginn fyrir fatlaða. Aðgengi er fyrir hjólastóla á neðri hæð húsnæðisins – þar sem stærsti hluti sýningarinnar er ásamt veitingastaðnum – en því miður ekki á efri hæð. Gestir sem nota hjólastól fá ókeypis aðgang á sýninguna.

Börn

Munirnir sem eru gerðir fyrir sýninguna eru ekki upprunalegir en við mælum með að börn séu í fylgd fullorðinna. Það hefur komið fyrir að uppvakningurinn á miðju gólfi sýningarinnar skjóti þeim yngstu skelk í bringu.

veitingastaður

Galdur er notalegur veitingastaður þar sem má gæða sér á ljúffengum réttum sem galdraðir eru fram úr hráefni úr nærumhverfinu. Á matseðlinum er valkostur fyrir veganistur. Að auki er hægt að gæða sér á kaffi og kökum. 

Galdur_Restaurant

Verslun

Í safnbúðinni er fjölbreytt úrval bóka sem fjalla um galdra, rúnir og þjóðsögur. Auk þess eru til sölu minjagripir sem eru innblásnir af galdrastöfum. Vöruúrvalið má skoða í vefversluninni okkar þar sem einnig er hægt að panta og við sendum hvert á land sem er. 

Helm of Awe

galdratúnið

Við Galdrasafnið er grasvöllur þar sem gaman er að tylla sér á bekk í góðu veðri, njóta friðsældarinnar og fylgjast með bátum og fuglum í höfninni. Þar hafa líka ófáir viðburðirnir verið haldnir eins og til dæmis Galdraleikar en fyrirmyndin af þeim er Quiddich-leikurinn úr Harry Potter bókunum. 

quidditch

Klemus Bjarnason var Strandamaður og var sá síðasti til að fá brennudóm fyrir galdur en dómnum var síðar breytt í útlegð. Á túninu við safnið stendur Klemus og horfir á haf út í túlkun listamannsins Arngríms Sigurðssonar. Uppsetning verksins var í senn minnisvarði um galdraöldina í tengslum við 20 ára afmæli Galdrasýningarinnar. 

Sýningin er opin allt árið

galdrasafn
wintermuseum

skoðið líka:

Horfðu’ í þessa egg, egg undir þetta tungl, tungl. Þá mælti hinn ókunni maður:
„Það er bölvað að bæta við að tarna, Kolbeinn."
Hélt Kolbeinn þá áfram vísunni og kvað: Eg spyrni þér með legg, legg, lið sem hrærir ungl, ungl."