Ferðablað 2008 um Strandir og Reykhólasveit
Þriðjudagur, 29. Apríl 2008 07:10
Ferðablaðið fyrir sumarið 2008, Á ferð um Strandir og Reykhólasveit kom
út á Sumardaginn fyrsta. Það er Arnkatla 2008 sem stendur fyrir
útgáfunni í samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða. Ferðablaðið sem er
tólf blaðsíður er prentað í 20 þúsund eintökum verður dreift á
upplýsingamiðstöðvar um allt land. Einnig mun það liggja frammi á öllum
viðkomustöðum ferðamanna á svæðinu. Í ferðablaðinu er hægt að kynnast
því helsta sem er að gerast í ferðaþjónustu á Ströndum og í
Reykhólasveit.
Blaðið er einnig hægt að nálgast í tölvutæku formi með því að
smella hér.